2015-04-15 17:31:00 CEST

2015-04-15 17:31:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 17 0206 og RIKB 31 0124


Föstudaginn 17. apríl kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokknum RIKB 17 0206 og RIKB 31 0124.
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 21.
apríl 2015. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 22. apríl 2015.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.