2024-05-15 11:22:24 CEST

2024-05-15 11:22:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Skel fjárfestingafélag hf. - Innherjaupplýsingar

SKEL fjárfestingafélag hf.: Viljayfirlýsing undirrituð vegna samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar


Vísað er til tilkynninga dags. 19. janúar og 22. mars 2024 vegna könnunarviðræðna SKEL fjárfestingafélags hf. („SKEL“) og Samkaupa hf. („Samkaup“), kt. 571298-3769 um mögulegan samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í eigu SKEL, nánar tiltekið Orkunnar IS ehf., Löður ehf., Heimkaupa ehf., Lyfjavals ehf. („samrunafélögin“).

Í dag undirrituðu SKEL og Samkaup viljayfirlýsingu vegna samruna Samkaupa og samrunafélaganna. Verði af fyrirhuguðum samruna er gert ráð fyrir að Samkaup verði yfirtökufélagið. Skiptihlutföll í fyrirhuguðum samruna eru ætluð 58,1:41,9, þannig að hluthafar samrunafélaganna fá afhenta 281.256.454 hluti í Samkaupum og Samkaup fær á móti alla hluti framangreindum félögum. Fjöldi útistandandi hluta í Samkaup eftir samruna er þá áætlaður 671.256.454 kr. að nafnverði. Framangreind skiptihlutföll verða leiðrétt út frá stöðu handbærs fjár, vaxtaberandi skulda og nettó stöðu veltufjármuna (veltufjármunir/veltufjárskuldir) miðað við viðmiðunardag. Ætlaður hlutur SKEL í hinu sameinaða félagi verður 42,7% en fyrir átti SKEL 5% hlut í Samkaup í gegnum Eignarhaldsfélagið Bjarma ehf.

Viljayfirlýsingin kveður á um að hið sameinaða félag skuli stefna að eftirfarandi markmiðum:

  • Sækja fram á matvöru-, lyfja-, og orkumarkaði, auk þess að skoða frekari tækifæri í aðdraganda skráningar.
  • Skráningu á aðalmarkaði kauphallar eins fljótt og kostur er, en eigi síðar en að 18 mánuðum liðnum frá sameiningu félaganna.
  • Stjórnarhættir félaganna taki mið af leiðbeiningareglum Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka Atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

Aðilar réðu Deloitte ehf. og Fossa fjárfestingarbanka hf. til þess að leggja mat á möguleg samlegðaráhrif fyrirhugaðs samruna, sem félögin gerðu á grundvelli afhentra gagna í lokuðu gagnaherbergi (e. clean room). Niðurstaðan er að samlegðaráhrif fyrirhugaðs samruna geti numið á bilinu 1.400 til 1.700 milljónum króna á og myndu raungerast á öðru ári eftir sameiningu. Virði samlegðar er áætlað um 10,5-14 milljarðar króna.

Viljayfirlýsingin er háð fyrirvörum, svo sem um niðurstöðu áreiðanleikakannanna, frekari samninga- og skjalagerð, samþykki eftirlitsaðila og samþykki hluthafafundar félaganna.

Stefnt er að undirritun skuldbindandi samrunasamnings að loknum áreiðanleikakönnunum og viðmiðmunardagur samruna sé við lok þriðja ársfjórðungs. SKEL mun greina frekar frá framvindu eftir því sem tilefni er til.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL, fjarfestar@skel.is