2013-02-26 20:28:58 CET

2013-02-26 20:29:14 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Ríkisútvarpið getur samið við Vodafone


Þann 18.janúar síðastliðinn var tilkynnt að Ríkisútvarpið hafi valið tilboð
Vodafone (Fjarskipta hf.) í útboði nr. 15233 um stafræna
sjónvarpsdreifingu. Hinn tilboðsgjafinn kærði útboðsferlið til kærunefndar
útboðsmála.

Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað málatilbúnaði hins tilboðsgjafans og mun
Ríkisútvarpið ganga til samninga við Vodafone á grundvelli fyrrgreinds tilboðs.

Nánari upplýsingar verða veittar við undirritun samnings.

[HUG#1681323]