|
|||
2014-01-17 11:23:26 CET 2014-01-17 11:23:46 CET REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - HluthafafundirHluthafafundur í FAST-1 slhf. verður haldinn 24. janúar 2014HLUTHAFAFUNDUR FAST-1 SLHF. 24. JANÚAR 2014, KL. 10:00 Hluthafafundur FAST-1 slhf., verður haldinn þann 24. janúar 2014, að Kirkjusandi 2, 105 Reykjavík og hefst fundurinn kl. 10:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Kosning fundarstjóra. 2. Tillaga um breytingu á tilgangi félagsins skv. samþykktum þess. a. Að bætt verði við tilgang félagsins skv. 1.3. gr. samþykkta félagsins, orðinu "lánastarfsemi". 3. Tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins. a. Lögð til breytingartillaga á 2.6. gr. samþykkta félagins þess efnis að stjórn félagsins hafi heimild til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 7.767.694.256.- að nafnverði. Önnur atriði ákvæðisins standa óbreytt. 4. Önnur mál. Endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis tveimur dögum fyrir hluthafafund. Meðfylgjandi fundarboði þessu er umboð til handa hluthöfum sem óska eftir því að umboðsmaður mæti fyrir þá á fundinn. Frekari upplýsingar veita; Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1 slhf. í síma 844-4778 og Kjartan Smári Höskuldsson, forstöðumaður VÍB, í síma 844-2950. Reykjavík, 16. janúar 2014. [HUG#1755397] |
|||
|