|
|||
2018-04-20 17:30:00 CEST 2018-04-20 17:30:00 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarVÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í mars 2018Samsett hlutfall var 90,8% í mars en það var 115,7% í mars 2017. Samsett hlutfall það sem af er ári er 97,3% og samsett hlutfall síðustu 12 mánuði er 93,1%. Nafnhækkun fjárfestingaeigna VÍS í mars var 1,0% en nafnhækkun frá áramótum er 2,9%. VÍS greiddi viðskiptavinum sínum um 1,5 milljarð króna í tjónabætur í febrúar og hefur greitt viðskiptavinum 3,7 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári. *Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105. |
|||
|