|
|||
2009-11-30 19:25:53 CET 2009-11-30 19:26:53 CET REGULATED INFORMATION Ríkisútvarpið - Ársreikningur- Ársreikningur 1.9.2008-31.8.2009Halli á rekstri RÚV rekstrarárið 1. september 2008 til 31. ágúst 2009 var 271 milljón króna og batnaði afkoma félagsins um 465 milljónir króna frá árinu á undan. Tap ársins má að öllu leyti rekja til mikils fjármagnskostnaðar vegna verðbólgu og gengislækkunar íslensku krónunnar. Fyrstu sex mánuði rekstrarársins var hallinn 365 milljónir króna en seinni hluti ársins skilaði 94 milljón króna hagnaði. Þessi umskipti skýrast af umfangsmiklum sparnaðaraðgerðum, sem gripið var til í upphafi rekstrarársins, og skila um 700 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli. Eigið fé RÚV er nú 515 milljónir króna. Þrátt fyrir jákvæða rekstrarafkomu RÚV á síðustu misserum eru blikur á lofti. Í því frumvarpi til fjárlaga sem nú er til meðferðar á Alþingi er gert ráð fyrir 10% niðurskurði á tekjum RÚV af almannaþjónustu. Þetta kemur til viðbótar þeim samdrætti sem orðið hefur á auglýsingamarkaði. Ársreikningurinn er nú gerður í fyrsta sinn í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Við innleiðinguna var fylgt fyrirmælum IFRS 1 um innleiðingu IFRS í fyrsta skipti. Opnunarefnahagsreikningur við innleiðinguna miðast við 1. september 2007. Samanburðartölum vegna síðasta rekstrarárs hefur verið breytt til samræmis við IFRS. Innleiðing IFRS hefur þau áhrif að bókfært eigið fé 31. ágúst 2008 lækkar um 39,7 milljónir króna. Afkoma reikningsársins 1. september 2007 - 31. ágúst 2008 breytist óverulega eða um 3,0 milljónir króna til lækkunar á tapi ársins. Við innleiðingu IFRS breytast reikningsskilaaðferðir félagsins. Þar munar mest um breytta meðferð fastafjármuna og afskrifta þeirra, auk þess sem skýringar eru ítarlegri en verið hefur. |
|||
|