2014-03-24 17:40:21 CET

2014-03-24 17:41:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. – Undirritun Aðalmiðlarasamninga


Í dag, 24. mars 2014, var skrifað undir samninga milli Lánasjóðs sveitarfélaga
ohf. og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og
viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með
samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á
eftirmarkaði. 

Frá 26. mars 2014 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Íslandsbanki hf.,
Landsbankinn hf., MP banki hf. og Straumur fjárfestingabanki. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is