2015-01-13 12:45:00 CET

2015-01-13 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 15 0415 OG RIKV 15 0715


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 15 0415 og RIKV 15 0715 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 15 0415:

Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.650 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 8.050 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,047 (flatir
vextir 3,85%). 

RIKV 15 0715:

Alls bárust 4 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 560 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 360 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,125 (flatir vextir
3,80%).