2011-02-24 16:03:24 CET

2011-02-24 16:04:24 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Ársreikningur

Ársreikningur 2010


TM styrkir stöðu sína

Helstu niðurstöður ársins 2010:

Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á árinu 2010 var 765 m.kr. samanborið við
237 m.kr. hagnað 2009. 

  -- Heildartekjur TM árið 2010 voru 11,6 milljarðar króna en voru 12,8
     milljarðar króna 2009. Heildargjöld 2010 voru 10,8 milljarðar króna en 12,5
     milljarðar 2009
  -- Eigin iðgjöld jukust um 8% og voru 10.170 m.kr. samanborið við 9.431 m.kr.
     á árinu 2009.
  -- Eigin tjónakostnaður lækkaði um 12% og var 7.794 m.kr. á árinu 2010
     samanborið við 8.859 m.kr. 2009.
  -- Rekstrarkostnaður lækkaði um 2% og var 2.145 m.kr. á árinu 2010 samanborið
     við 2.192 m.kr. 2009.
  -- Eigið tjónshlutfall félagsins lækkaði úr 94% í 77% á milli ára.
  -- Samsett hlutfall félagsins lækkaði úr 114% í 95%.
  -- Fjárfestingatekjur félagsins voru jákvæðar sem nemur 1.363 m.kr. en voru
     3.359 m.kr. á árinu 2009.
  -- Heildareignir TM voru 29.407 m.kr. þann 31. desember 2010. Eigið fé nam
     8.803 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 30%.



Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Í ljósi efnahags- og samkeppnisaðstæðna voru vöxtur og afkoma TM á árinu 2010
mjög góð. Iðgjaldatekjur jukust á sama tíma og tjónakostnaður lækkaði
umtalsvert. Afkoma af vátryggingastarfsemi var ein sú besta í sögu félagsins og
er ánægjulegt að sjá markvissa úrbótavinnu á þessu sviði skila árangri.
Aðstæður á fjármálamörkuðum voru hins vegar erfiðar og afkoma af
fjármálastarfsemi var undir væntingum. Fjárhagsstaða TM er sem fyrr traust og
hækkaði eiginfjárhlutfall á milli ára. Styrkur TM felst í góðu sambandi við
viðskiptavini sína og reksturinn framundan býður uppá fjölmörg tækifæri”. 



Jákvæð þróun í vátryggingarekstri

Rekstrarafkoma af vátryggingastarfsemi var 1.501 m.kr. fyrir skatta á árinu
2010. Afkoma eigna-, skipa- og ökutækjatrygginga batnaði verulega milli ára.
Afkoma slysatrygginga var óbreytt milli ára. Afkoma ábyrgðartrygginga olli enn
vonbrigðum þrátt fyrir verulegan bata á milli ára. Í heild lækkaði
tjónshlutfall samstæðunnar úr 94% í 77% og samsett hlutfall er 95% sem er í
takt við það sem tíðkast í rekstri tryggingafélaga í Evrópu. 



Tap af fjármálarekstri

Afkoma af fjárfestingastarfsemi félagins nam 1.363 m.kr. árið 2010, samanborið
við 3.359 m.kr. árið 2009. Þessi breyting skýrist að mestu af lægri
vaxtatekjum, neikvæðri gengisþróun og minni gangvirðishækkunum hlutabréfa.
Afkoma af fjármálarekstri félagsins á árinu 2010, að teknu tilliti til
fjármagnsgjalda og virðisrýrnunar fjáreigna, var neikvæð um 695 m. kr. á árinu
2010. 



Lægri rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður TM á árinu 2010 var 2.145 m.kr. Frekari hagræðingaraðgerðir á
árinu skiluðu sér í lækkun rekstrarkostnaðar í krónum talið, þriðja árið í röð.
Kostnaðarhlutfall samstæðunnar lækkaði úr 20,4% árið 2009 í 18,6% árið 2010. 



Traust fjárhagsstaða

Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á árinu 2010 var 765 m.kr. samanborið við
237 m.kr. hagnað 2009. Fjárhagsleg staða TM er sem fyrr sterk, eigið fé í
árslok 2010 nam 8.803 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 30%. Eignir á móti
vátryggingaskuld (bótasjóður) eru traustar þar sem stór hluti eignasafns
félagsins er í ríkistryggðum verðbréfum og innstæðum. Geta félagsins til að
standa við skuldbindingar sínar er langt umfram það sem opinberir aðilar gera
kröfur um. 



Skýr stefna

Stjórnendur og starfsmenn TM horfa björtum augum til framtíðar. Félagið hefur
allt frá stofnun þess árið 1956 einbeitt sér að því að byggja upp traust í
samskiptum við viðskiptavini sína og mun halda áfram á þeirri braut. Sóknarfæri
á markaði eru mörg fyrir TM og munu verkefni ársins 2011 snúa að því að nýta
þau til fullnustu. 






         Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2609