2015-02-17 21:05:07 CET

2015-02-17 21:06:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. - Samkomulag um kaup á fasteignasafni


Reginn hf. og Fastengi ehf.  hafa gert samkomulag um að ganga til viðræðna um
kaup á fasteignasafni í eigu félagsins á grundvelli verðhugmynda sem koma fram
í  tilboði Regins. Fastengi ehf. er dótturfélag Miðengis ehf., sem er félag í
100% eigu Íslandsbanka. Ef af samningum verður þá er hér um að ræða kaup á
rúmlega 80  fasteignum og stærð safnsins er um 62.000 fermetrar. 

Lýsing á fasteignasafni:

Eignasafnið sem um ræðir samanstendur af atvinnuhúsnæði og er að stærstum hluta
á höfuðborgarsvæðinu eða yfir 80%.  Skipting á fasteignum eftir atvinnuflokkum
er þannig að 59% er  iðnaðar- og geymsluhúsnæði, 24% er skrifstofuhúsnæði,
verslunarhúsnæði er 14% og íþróttar og afþreyingarhúsnæði 3%. Útleiguhlutfall
safnsins m.v. leigjanlega m2 er rúm 50%. 

Í fylgiskjali má sjá myndræna greiningu á eignum eftir flokkum og staðsetningu.

Kaupin og úrvinnsla á safninu.

Verði af kaupum mun Reginn auka og breikka framboð á eignasafni sínu,
sérstaklega varðandi iðnaðar- og geymsluhúsnæði. Stór hluti safnsins
samanstendur af miðlungs og minni eignum en það er húsnæði sem Reginn hefur
vantað í framboð sitt á leigumarkaði. Nýting safnsins er lág eða rúmlega 50%.
Dreifing eigna innan höfuðborgarsvæðisins fellur að mati félagsins vel að
eftirspurn sem er til staðar og má vænta á næstu misserum. Dreifingin fellur
einnig vel að núverandi safni Regins. 

Tilboð Regins sem sett er fram í samkomulaginu er 5.914 m.kr. eða að meðaltali
um 95 þús.kr./m2 . Gert er ráð fyrir að núverandi leigutekjur séu um 440 m.kr á
ári.  Leigutekjur á safninu miðað við leigða fermetra (50% nýting) er því
tæplega 1.200 kr./m2 . 

Eignasafnið þarf töluverða endurskipulagningu og úrvinnslu. Gert er ráð fyrir
að næstu 3 árin fari í að hámarka arðsemi eignasafnsins m.a. með því að koma
óleigðum rýmum í leigu. Ennfremur er líklegt að einhverjar fasteignir verði
seldar út úr safninu. Mikil sérþekking og afkastageta er innan Regins á
verkefnum sem þessum 

Áhrif á Reginn.

Reiknuð arðsemi (yield) við kaup á safninu er lág eða rétt undir 4%.  Reginn
áætlar að það taki um 2 - 3 ár að hækka nýtingu  keypta safnsins í 80% - 90% og
miðað við áætlun félagsins er gert ráð fyrir að arðsemi safnsins  verði um 8 -
10%  að úrvinnslutíma liðnum. Gert er ráð fyrir að safnið skili 230 m.kr.
EBITDA (rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir) á fyrsta
heila rekstrarárinu. Miðað við áætlaða nýtingu sbr. hér að ofan er gert ráð
fyrir að EBITDA frá safninu verði um 540 m.kr.  Fyrsta heila rekstrarárið eru
áhrif kaupanna á afkomu Regins lítil, gert er ráð fyrir að arðsemi
fjárfestingaeigna geti lækkað um 0,4% fyrsta árið en áhrif að úrvinnslutíma
liðnum verði um 0,6% til hækkunnar. Miðað er við að kaupin verði fjármögnuð að
fullu með lántöku. Gert er ráð fyrir að eiginfjárhlutfall Regins að afloknum
kaupum verði rúmlega 31%. 



Samkomulag milli Regins og Fastengis um að fara í viðræður um kaup á
framangreindu eignasafni er jafnframt með fyrirvara um niðurstöður
áreiðanleikakannana, endanlegt samþykki stjórnar félaganna, samþykki
Samkeppniseftirlitsins og fjármögnun kaupanna. Vakin er athygli á því að hér er
um að ræða samkomulag um viðræður  og því enn töluverð óvissa um hvort af
kaupunum verði. 

Nánari upplýsingar verða gefnar þegar niðurstöður viðræðna liggja fyrir. Gert
er ráð fyrir því innan fárra vikna. 

Í fylgiskjali má sjá myndræna greiningu á eignum eftir flokkum og staðsetningu
og áhrif á eignasamsetningu Regins. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson - Forstjóri - helgi@reginn.is - S: 512 8900 / 899 6262