2019-08-23 11:00:00 CEST

2019-08-23 11:00:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Hagar hf. – Breyting á viðskiptavakt


Hagar hf. hafa sagt upp samningi sínum við Arion banka hf. um viðskiptavakt.

Hagar hf. og Kvika banki hf. hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins.

Kvika banki hf. skuldbindur sig til að setja fram dag hvern kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi kauphallar. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera 450.000 að nafnvirði, en þó aldrei hærra en 35 milljónir að markaðsvirði, á gengi sem Kvika ákveður í hvert skipti. Verði tilboðum Kviku tekið skal Kvika setja fram annað tilboð innan 15 mínútna frá síðustu viðskiptum. Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða skal vera 1,5%. Ef verðbreyting á hlutabréfum Haga innan dags nær 10% er Kviku heimilt að tvöfalda hámarksverðbil kaup- og sölutilboða tímabundið það sem eftir er dagsins. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kvika er skuldbundin til að eiga viðskipti með skv. samningnum skal samsvara kr. 150.000.000 að markaðsvirði.

Samningurinn tekur gildi 1. september 2019 og er uppsegjanlegur með 14 daga fyrirvara.

Samningur félagsins um viðskiptavakt við Íslandsbanka hf. helst óbreyttur.

 

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu, í síma 530-5500.