|
|||
2012-08-29 10:55:39 CEST 2012-08-29 10:56:43 CEST REGULATED INFORMATION Íslandssjóðir hf. - ÁrsreikningurÍslandssjóðir – Árshlutauppgjör 2012Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012. Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2012 -- Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða, þ.e. rekstrarfélagsins, og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. -- Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins 2012 er 127 m.kr. samanborið við 98 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður. -- Hreinar rekstrartekjur námu 568 m.kr. samanborið við 541 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður, jukust um 5%. -- Rekstrargjöld námu 409 m.kr. samanborið við 419 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og lækkuðu um 2,4%. -- Heildareignir félagsins 30. júní 2012 námu 3.166 m.kr. en voru 2.854 m.kr. í árslok 2011. -- Eigið fé 30. júní 2012 nam 1.794 m.kr. en var 1.741 m.kr. í árslok 2011. -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 160,5% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8%. -- Í lok júní 2012 voru 19 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 110.100 milljónum króna samanborið við 112.890 m.kr. í lok árs 2011. Þar af eru 15 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 100.972 milljónir króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 9.128 milljónir króna. Einn sjóður sem skráður er í Lúxemborg er í stýringu félagsins. -- Á árinu tóku Íslandssjóðir yfir rekstur og stýringu verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags Byrs. Um var að ræða sjóðina Skuldabréfasjóðinn, Alþjóða virðissjóðinn og Alþjóða vaxtarsjóðinn, auk Fyrirtækjasjóðsins sem er í slitaferli. Við þessa yfirtöku jukust eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum um 2.292 milljónir. Yfirtakan á rekstri sjóðanna var samþykkt af Fjármálaeftirlitinu þann 14. maí og átti yfirfærslan á eignum sjóðanna sér stað þann 31. maí. -- Í lok júní voru framkvæmdar lokaútgreiðslur úr sjóðunum 9.3 - Peningamarkaðsbréf USD og 9.1 - Peningamarkaðsbréf EUR og hefur sjóðunum þar með verið formlega slitið. -- Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte ehf., en við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2012. -- Í lok júní 2012 störfuðu 15 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdarstjóri félagsins er Agla Elísabet Hendriksdóttir. Lykiltölur í m.kr.: 6 mán. 2012 6 mán. 2011 ------------------------------------------------ Hreinar rekstrartekjur 568 541 ------------------------------------------------ Rekstrargjöld 409 419 ------------------------------------------------ Hagnaður fyrir skatta 159 123 ------------------------------------------------ Hagnaður eftir skatta 127 98 ------------------------------------------------ Eigið fé 1.794 1.593 ------------------------------------------------ Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins -- Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2.136 m.kr. samanborið við 2.120 m.kr. hagnað fyrstu sex mánuði ársins 2011. -- Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða nam 100.972 m.kr. samanborið við 106.009 m.kr. í árslok 2011. Lykiltölur í m.kr. Ríkisskuldabréf Úrvalsvísitala Löng Heimssafn - - Sjóður 5 -Sjóður 6 ríkissk.br. - Sjóður 12 Sjóður 7 -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 439 33 942 38 tímabilsins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í 34.198 520 41.334 659 lok tímabils -------------------------------------------------------------------------------- Ríkissafn Veltusaf Eignasafn Eignasafn - Ríki og n sjóðir -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 206 175 12 4 tímabilsins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í lok 11.513 7.530 467 521 tímabils -------------------------------------------------------------------------------- Lengri skuldabréfa- Alþjóða Alþjóða sjóðurinn virðissjóðurinn vaxtarsjóðurinn -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 1 (5) (3) tímabilsins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í lok 1.820 106 76 tímabils -------------------------------------------------------------------------------- Sjóður Sjóður Sjóður Sjóður Samtals 1A 1B 11A 11B verðbréfasjóðir -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 121 188 (5) (9) 2.136 tímabilsins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í lok 788 1.220 77 143 100.972 tímabils -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins -- Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini fyrstu sex mánuðina nam 586 m.kr. samanborið við 19 m.kr. hagnað fyrstu sex mánuðina 2011. -- Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða nam 9.128 m.kr. samanborið við 6.881 m.kr. í árslok 2011. Lykiltölur í m.kr. Fókus - Úrval innl. hlbr. - Skuldabréfasaf Vextir Sjóður 10 n -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 100 328 51 tímabilsins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í lok 3.897 3.228 1.972 tímabils -------------------------------------------------------------------------------- Fyrirtækjas Sjóður 9.1 Sjóður 9.3 Samtals jóður EUR USD fjárfestingarsjóðir -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 3 (2) 105 586 tímabilsins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í lok 31 0 0 9.128 tímabils -------------------------------------------------------------------------------- Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá félaginu í húsnæði Íslandsbanka Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 4. september 2012. Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir: Agla Elísabet Hendriksdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440-4917. |
|||
|