2009-11-24 11:20:00 CET

2009-11-24 11:20:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
KB ABS 12 - Samþykktir félags

- Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. verður Stefnir hf.


Á hluthafafundi Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem haldinn var í dag, var
tekin ákvörðun um að breyta nafni félagsins í Stefnir hf. Samþykktir félagsins,
með innfelldum breytingum, eru meðfylgjandi. 

Stefnir hf. rekur fjölbreytt úrval sjóða um sameiginlega fjárfestingu, þ.m.t.
fagfjárfestasjóðinn KB ABS 12, sem hefur fengið fjármálagerninga tekna til
viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. 

Nánari upplýsingar veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma
444 7464.