2012-11-14 23:45:00 CET

2012-11-14 23:45:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HS Orka hf - Ársreikningur

Árshlutareikningur 30.09.2012


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins
fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2012. 

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla,
IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu
fyrirtækisins http://www.hsorka.is 



Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

·EBITDA er áfram öflug og er alls um 2.034 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins
2012 en var 2.122 m.kr. á sama tímabil 2011. 

·Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok september 2012 eða um 50%. Á tímabilinu
nýtti Jarðvarmi slhf. rétt sinn til að auka hlut sinn í HS Orku úr 25% upp í
33,4%, vegna þessa var hlutafé aukið um 4.698 m.kr. og var hið nýja hlutafé
greitt inn í lok febrúar 2012. 

·Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er
hagnaður upp á 1.071 milljónir.  Hækkun  afleiðna (framtíðarvirði
orkusölusamninga sem tengjast álverði) um  2.075 m.kr vega þyngst en gengistap
var 249 m.kr. kemur móti kom hækkuninni.. 

·Þrátt fyrir gott EBITDA lækka tekjur um 11% eða um 596 m.kr. og námu 4.954
m.kr. í lok ársfjórðungsins en voru 5.551 m.kr. á sama tímabili árið 2011. Að
sama skapi lækkar rekstrarkostnaður um 12% eða sem nemur 488 m.kr. milli
þessara tímabila Nokkrar ástæður eru fyrir þessari lækkun tekna, m.a. lækkun á
álverði, en stærst vegur hins vegar að samningur um sölu á 35 Mwe til Norðuráls
Grundartanga rann út 1. október 2011. Á móti því kemur að samningur við
Landsvirkjun um kaup á 8 MWe á ári rann út nú um síðustu áramót. Mismunurinn
(27 MWe) hefur síðan að mestu verið seldur á almennum markaði en þar er
nýtingartíminn talsvert lægri. Flutningskostnaður lækkar síðan þar sem ekki er
lengur greitt fyrir flutning þessara 35 MWe til Norðuráls en jafnvirði þess
kostnaðar var áður hluti teknanna. 

·Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860
5208.