2010-12-23 12:45:53 CET

2010-12-23 12:46:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn





Þann 10. desember 2010 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna
og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir „kröfuhafar“)
um að gjaldföllnum greiðslum og dráttarvöxtum yrði bætt við höfuðstól og
samningum og fjármálagerningum skilmálabreytt þannig að næsta greiðsla yrði
ekki fyrir 1. maí 2011 ásamt því að ýmsar kvaðir voru settar á Reykjaneshöfn á
þessum tíma sbr. nánar efni tillögunnar. 

Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki
allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða
samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa allir samþykkt
tillöguna. Telst því tillagan samþykkt. 

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.