|
|||
2011-08-11 13:47:05 CEST 2011-08-11 13:48:05 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 1115 og RIKV 12 0215Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 11 1115 og RIKV 12 0215 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 11 1115: Alls bárust 23 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 18.737 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 17.237 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,239 (flatir vextir 3,00%). RIKV 12 0215: Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.950 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.450 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,490 (flatir vextir 3,00%). |
|||
|