2015-12-08 18:47:13 CET

2015-12-08 18:47:13 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs


Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 8. desember 2015 er
lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokki,
REITIR151244, og í nýjum flokki, REITIR151124. Tilgangur útboðsins er að
endurfjármagna núverandi skuldir félagsins, styðja við þróun þess og auka
fjölbreytni fjármögnunar. 

Alls bárust tilboð í flokkana að nafnvirði 9.300 milljónir króna. Ákveðið var
að taka tilboðum að nafnvirði 1.280 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,41% í
flokknum REITIR151124 og að nafnvirði 2.420 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni
3,45% í flokknum REITIR151244. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði
25.550 miljónir króna í flokknum REITIR151244 og verður heildarstærð hans því
að nafnvirði 27.970 milljónir króna eftir útgáfuna. Ekki hafa áður verið gefin
út skuldabréf í flokknum REITIR151124 og verður heildarstærð hans því að
nafnvirði 1.280 milljónir króna eftir fyrstu útgáfu. 

Stefnt er að skráningu skuldabréfaflokksins REITIR151124 á Aðalmarkað Nasdaq
Iceland. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. mun hafa umsjón með fyrirhugaðri
skráningu en bankinn hafði einnig umsjón með ofangreindu útboði skuldabréfanna. 

Gjalddagi áskrifta, afhending bréfa og skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er
fyrirhuguð 15. desember næstkomandi. 

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669
4416