|
|||
2016-03-22 19:13:02 CET 2016-03-22 19:13:02 CET REGULATED INFORMATION Reginn hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaReginn hf. - HlutafjáraukningStjórn Regins ákvað á fundi sínum þann 22. mars 2016 að nýta heimild í 4. gr. samþykkta félagsins sem samþykkt var á hluthafafundi Regins fyrr þann sama dag og hækka hlutafé í Regin um 126.600.000 krónur að nafnvirði á genginu 19,0 krónur á hlut. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Hlutafjáraukningunni verður ráðstafað sem greiðslu fyrir hlutafé í fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. í samræmi við kaupsamning dags. 30. desember 2015. Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna er 1.428.700.000 krónur að nafnvirði og verður að henni lokinni 1.555.300.000 krónur að nafnvirði. Reginn á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Fyrirtækjaskrá. Sölubann gildir um hina nýju hluti þannig að 30% hlutanna verða seljanlegir við afhendingu, 60% eftir 6 mánuði og 100% eftir 9 mánuði frá afhendingu. Hinir nýju hlutir verða afhentir eigendum fasteignafélaganna Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. sem eru nokkrir. Af þessum aðilum er enginn með stærri hlut en 2% í Regin að undanskyldum Sigurði Sigurgeirssyni fagfjárfesti. Í gegnum eignarhaldsfélag sitt, Mjölnisholt ehf. verður Sigurður sjötti stærsti hluthafinn í Regin. Eftirfarandi er listi yfir 10 stærstu hluthafa í Regin eftir hlutafjáraukninguna: Nr. Nafn Hlutir % --------------------------------------------------------------- 1 Lífeyrissjóður verslunarmanna 208.388.362 13,4% 2 Stefnir - ÍS 15 132.985.661 8,6% 3 Sigla ehf. 122.265.000 7,9% 4 Gildi - lífeyrissjóður 114.180.738 7,3% 5 Stapi lífeyrissjóður 88.719.956 5,7% 6 Mjölnisholt ehf. 58.157.363 3,7% 7 Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 56.337.947 3,6% 8 Sameinaði lífeyrissjóðurinn 51.643.860 3,3% 9 Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild 44.800.000 2,9% 10 Stefnir – Samval 43.303.836 2,8% --------------------------------------------------------------- 10 stærstu hluthafar í Regin samtals 920.782.723 59,2% Aðrir hluthafar 634.517.277 41,3% --------------------------------------------------------------- Samtals 1.555.300.000 100,0% Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|