2016-03-23 00:00:39 CET

2016-03-23 00:00:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Héraðsdómur dæmir Haga hf. til greiðslu skaðabóta


Dómnum verður áfrýjað

Þann 18. desember 2012 barst Högum stefna frá Kaupás ehf. þar sem félagið
höfðaði mál á hendur Högum hf. til heimtu skaðabóta. Aðalkrafa var að upphæð
233.351.961 krónum auk vaxta frá janúar 2009. Varakröfur námu lægri upphæðum.
Við sölu Kaupás ehf. var krafan framseld til Norvikur hf. og tók það fyrirtæki
þá við rekstri málsins. 

Í dag hefur Héraðsdómur Reykjaness dæmt Haga til að greiða Norvik hf.
218.726.487 krónur í skaðabætur vegna tjóns af völdum svonefnds
mjólkurverðstríðs á árunum 2005-2006, auk vaxta og málskostnaðar. 

Hagar hyggjast áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms til Hæstaréttar.





Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.