2020-09-24 17:41:55 CEST

2020-09-24 17:42:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reginn hf.: - Forgangsréttarútboð í Reginn hf. hefst á morgun



Forgangsréttarútboð Regins hf. á allt að 40.000.000 hlutum á genginu 15,0 kr. á hlut hefst á morgun, föstudaginn 25. september kl 09:00 (GMT) og stendur yfir til mánudagsins 28. september kl 17:00 (GMT). Hluthafar Regins hafa forgangsrétt að hinum nýju hlutum sem boðnir eru og er sölu þeirra aðeins beint að hluthöfum Regins. Hluthöfum er heimilt að framselja forgangsrétt sinn að hluta eða í heild, hvort heldur til annars forgangsréttarhafa eða til annarra. Framsal forgangsréttar fer fram á vefsíðu útboðsins og er opið fyrir framsal á meðan útboðið stendur yfir.

Tekið verður við áskriftum forgangsréttarhafa á sérstöku rafrænu áskriftarformi sem forgangsréttarhafar geta nálgast á vefslóðinni www.islandsbanki.is/Reginn-utbod frá kl. 09:00 (GMT) þann 25. september 2020 til kl 17:00 (GMT) þann 28. september 2020.

Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum forgangsréttarútboðsins sem birtir voru þann 14. september síðastliðinn og eru þeir einnig í viðhengi við tilkynningu þessa.

Fjárfestar geta nálgast upplýsingar um útboðið og aðstoð við skráningu áskrifta hjá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka í síma 440-4000 milli kl. 09:00 og 16:00 dagana 25. september og 28. september 2020 og á tölvupóstfanginu reginn-utbod@islandsbanki.is


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson - Forstjóri Regins hf. - Sími: 512 8900 / 899 6262

Viðhengi