|
|||
2008-10-07 11:48:06 CEST 2008-10-07 11:49:07 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirStandard & Poor's lækkar lánshæfismat ÍbúðalánasjóðsMatsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í gær, 6. október 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í 'BBB' úr 'A+'. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'BBB' úr 'A-'. Þá voru langtímaeinkunnir teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var lækkuð í 'A-3' úr 'A-2' og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum 'A-1' var lækkuð í 'A-3'. Horfur á lánshæfismat Íbúðalánasjóðs eru neikvæðar. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi. |
|||
|