|
|||
2009-06-02 17:34:26 CEST 2009-06-02 17:35:26 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2008 er til fyrri umræðu í borgarstjórn í dag þriðjudaginn 2. júní. Síðari umræða um ársreikninginn verður 16. júní nk. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A hluta og B hluta. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.Fyrirtækin eru: Aflvaki hf., Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningarhöllin hf., Jörundur ehf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs. Rekstur Tafla 1 Úr rekstraryfirliti og sjóðstreymisyfirliti fyrir árið 2008 - í þús. kr. Sjá viðhengi. Í fjárhagsáætlun ársins 2008 fyrir A hluta var gert ráð fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði jákvæð um 7,6 milljarða króna og heildarniðurstaða ársins jákvæð um 10,9 milljarða króna. Samkvæmt ársreikningi er niðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði jákvæð um 2,0 milljarða króna og heildarniðurstaða jákvæð um 2,3 milljarða króna. Í áætlun ársins 2008 fyrir A og B hluta var gert ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu fyrir fjármagnsliði um 13,6 milljarða króna og jákvæðri heildarniðurstöðu um 10,1 milljarð króna. Samkvæmt ársreikningi er niðurstaða A og B hluta fyrir fjármagnsliði jákvæð um 8,1 milljarð króna en heildarniðurstaða er neikvæð um 71,5 milljarða króna. Rekstrartekjur A og B hluta voru 89,4 milljarðar króna eða um 7,3 milljarðar undir áætlun og rekstrargjöld voru 81,3 milljarðar króna eða 1,8 milljarða undir áætlun. Frávik í tekjum skýrist einkum af lækkun tekna af sölu byggingaréttar og frávik í gjöldum skýrist einkum af breytingu lífeyrisskuldbindingar, sem var jákvæð um 1,1 milljarð en ekki neikvæð um 2,6 milljarða eins og áætlun hafði gert ráð fyrir. Fjármagnsgjöld voru neikvæð um 99,8 milljarða króna eða um 96,4 milljarða umfram áætlun sem skýrist einkum af gengis- og verðlagsbreytingum. Rekstrartekjur A hluta voru 58,8 milljarðar króna eða 8,1 milljarð undir áætlun. Þar af voru frávik vegna ofáætlaðra tekna af sölu byggingaréttar 11,1 milljarður króna en fasteignagjöld voru 1,8 milljarðar yfir áætlun. Rekstrargjöld voru 56,8 milljarðar króna eða um 2,5 milljarðar undir áætlun sem skýrist einkum af breytingu lífeyrisskuldbindingar. Í eftirfarandi töflu er sýnd ráðstöfun skatttekna til reksturs málaflokka í samanburði við fjárhagsáætlun. Tafla 2 Rekstur málaflokka 2008 í samanburði við fjárhagsáætlun - í þús. kr. Sjá viðhengi. Eignir og skuldir Tafla 3 Helstu niðurstöðutölur efnahagsreiknings - í þús kr. Sjá viðhengi. Eignir A hluta voru 92,1 milljarður, hækka úr 88,5 milljarða króna eða um 3,6 milljarða. Skuldir A hluta að frátöldum skuldbindingum hækka úr 16,4 milljörðum í 19,8 milljarða eða um 3,4 milljarða en skuldbindingar lækka um 2,1 milljarð, úr 14,0 milljörðum í 11,9 milljarða. Eigið fé A hluta hækkar um 2,3 milljarða úr 58,1 milljarði í 60,5 milljarða, sem skýrist af rekstrarniðurstöðu. Eignir A og B hluta voru 388,6 milljörðum króna og hafa vaxið um 74,3 milljarða króna á árinu 2008. Heildarskuldir A og B hluta að frátöldum skuldbindingum eru 259,4 milljarðar króna en voru 135,9 milljarðar króna í árslok 2007 og hafa því aukist um 123,5 milljarða króna. Skuldbindingar lækkuðu um 6,7 milljarða króna á milli ára. Eigið fé A og B hluta lækkar um 39,6 milljarða úr 149,4 milljörðum í 109,8 milljarða, sem skýrist að stærstum hluta af neikværði rekstrarniðurstöðu 71,5 milljarðar og áhrifa sérstaks endurmats fastafjármuna, um 31,5 milljarða. Veltufjárhlutfall hjá A og B hluta var 1,04 í árlok 2008 á móti 1,68 árið á undan. Hjá A hluta var hlutfallið 1,74 í árslok 2008 en 2,62 árið á undan. |
|||
|