|
|||
2009-06-02 18:15:05 CEST 2009-06-02 18:16:15 CEST REGULATED INFORMATION Kópavogsbær - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Traustur rekstur Kópavogsbæjar þrátt fyrir áföll í efnahagslífinu Aðstæður á fjármálamarkaði setja mark sitt á uppgjör Kópavogsbæjar vegna ársins 2008. Ársreikningurinn sýnir tæplega 1 milljarðs kr. afgang af aðalsjóði áður en horft er til fjármagnskostnaðar og gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga. Daglegur rekstur var í samræmi við fjárhagsáætlun, tekjur heldur meiri en gjöldin nálægt áætlun. Sé hins vegar samstæðan skoðuð, A og B hluti ársreikningsins, er niðurstaðan neikvæð sem nemur 9.620.421.000 kr. Neikvæð staða byggist einkum á þremur þáttum: 1) Neikvæðum fjármagnsliðum sem námu um 6,5 milljörðum kr., aðallega gengistap vegna falls íslensku krónunnar. 2) Bakfærðum tekjum vegna lóðaskila en þær námu um 2,3 milljörðum kr. Úthlutuðum lóðum var skilað inn til bæjarins og staðið við skuldbindingar um endurgreiðslu að fullu. 3) Gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga að fjárhæð 805 milljónir kr. vegna hruns á fjármálamarkaði. Afleiðingarnar af því voru m.a. neikvæð ávöxtun á Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogsbæjar en aukin reiknuð lífeyrisskuldbinding. Við þetta má bæta hækkun á framkvæmdakostnaði vegna verulegrar hækkunar á byggingarvísitölu. Skatttekjur urðu 513 milljónum kr. hærri en áætlað var, afskriftir 231 milljón kr. umfram áætlun og aðrir liðir aðalsjóðs í samræmi við áætlun eins og fyrr er getið. Heildarfjárfestingar A og B hluta (brúttó) urðu um 14,7 milljarðar kr. á árinu 2008 eða rúmlega helmingi meiri en áætlað var. Munar mestu um yfirteknar lóðir en landakaup fóru úr 3,6 milljörðum kr. samkvæmt áætlun í 9,7 milljarða kr. Heildarskuldir samantekins ársreiknings A og B hluta án lífeyrisskuldbindinga hækkuðu milli ára úr 15,8 milljörðum kr. í árslok 2007 í 33,5 milljarða kr. í árslok 2008 eða um 17,7 milljarða kr. Hækkunin skýrist einkum af reiknuðum fjármagnsliðum og yfirteknum lóðum sem fyrr segir. Þrátt fyrir slæmt árferði er eiginfjárhlutfall Kópavogsbæjar um 21% eða eigið fé rúmar 10 milljarðar kr. Á síðastliðnum áratug hefur íbúum Kópavogs fjölgað um 51,3% á meðan landsmönnum fjölgaði um 17,5%. Kópavogsbúar voru 19.802 í lok árs 1997 en 29.957 í lok ársins 2008. |
|||
|