|
|||
![]() |
|||
2017-04-26 17:40:23 CEST 2017-04-26 17:40:23 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Síminn hf. - ÁrsreikningurSíminn hf. - Hagnaður Símans eykst milli áraHelstu niðurstöður í rekstri á fyrsta ársfjórðungi 2017
Orri Hauksson, forstjóri: „Starfsfólki samstæðunnar tókst að fylgja árangrinum sem náðist á síðari hluta ársins 2016 vel eftir. Rekstur þessa fyrsta fjórðungs batnar myndarlega milli ára, sem fyrst og fremst má þakka markvissum aðgerðum við að lækka kostnað hjá samstæðunni, aukinni sölu Sensa á þjónustu og lausnum sem og vaxandi eftirspurn eftir sjónvarpsþjónustu Símans. Síminn gekk frá nýjum viðamiklum samningi við kvikmyndaverið Disney á fjórðungnum, sem styrkir sjónvarpsþjónustuna enn frekar. Viðskiptavinum í áskriftarleigu okkar, Sjónvarpi Símans Premium, fjölgar hratt og telja þeir nú yfir 30 þúsund. Samstæðan ver þessi misserin háum fjárhæðum í að uppfæra kerfi sín. Markmiðið er að styrkja undirstöðurnar fyrir samkeppni framtíðarinnar. Míla heldur áfram að ljósleiðaravæða höfuðborgarsvæðið og hefur tengt á sjöunda þúsund heimila við ljósleiðara sinn það sem af er ári, til viðbótar við þau 30 þúsund sem þegar höfðu verið tengd. Tugir nýrra 4G senda voru settir upp til að efla enn frekar hraðasta farsímakerfi landsins. Nú standa yfir prófanir á nýjum og enn hraðari sendum sem ná 300 megabita hraða. Kostnaður beggja fjárfestingaverkefna er hagstæður sem veldur því að útbreiðslan er hröð. Við vinnum sem fyrr hörðum höndum að því að standa undir kröfum viðskiptavina okkar og erum á réttri leið með frábært sjónvarpsefni, hraða uppfærslu fastlínuinnviða og framúrskarandi farsímakerfi. Þróunin er hröð og við hlökkum til keppa áfram um hylli neytenda. Afkoman nú í upphafi árs styrkir þá trú okkar að grunnurinn sem lagður hefur verið sé traustur.“
Nánari upplýsingar um uppgjörið veita: Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is) Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is)
|
|||
|