|
|||
![]() |
|||
2016-09-09 17:31:01 CEST 2016-09-09 17:31:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 17 0315Þriðjudaginn 13. september kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 17 0315 sem er með gjalddaga 15. mars 2017. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 15. september 2016. Sótt verður um að RIKV 17 0315 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi fimmtudaginn 15. september 2016. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|