2016-09-09 20:38:54 CEST

2016-09-09 20:38:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun. Kaupum skv. endurkaupaáætlun lokið



Í 36. viku 2016 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 1.362.395 eigin hluti 
 fyrir kr. 11.730.887 eins og hér segir:                                        
                                          
  5.9.2016          10:22     70.000        8,60        602.000       71.646.631
  6.9.2016          15:10   1.155.814       8,61       9.951.559      72.802.445
  7.9.2016          14:04     136.581       8,62       1.177.328      72.939.026
   Samtals                  1.362.395                  11.730.887               
--------------------------------------------------------------------------------
                                                                                
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun  
 félagsins sem var hrint í framkvæmd 25. ágúst 2016, sbr. tilkynningu til       
 Kauphallar dags. 25. ágúst 2016.                                               
Endurkaupum lokið                                                               
Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. til Aðalmarkaðar um     
 framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka   
 útgefið hlutafé þess, dags. 25. ágúst 2016. Eins og greint var frá í þeirri    
 tilkynningu er sú endurkaupaáætlun sem lauk í dag fimmta endurkaupaáætlun      
 félagsins frá því aðalfundur 2014 veitti slíka heimild.                        
Aðalfundur 12. mars 2015 veitti stjórn heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun
 þess efnis að kaupa allt að 10% af hlutum félagsins á 18 mánuðum.              
Þann 30. apríl 2015 ákvað stjórn VÍS að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að   
 1.000.000.000 kr. að markaðsvirði. Því var lokið sjö mánuðum síðar. Þá höfðu   
 4,88% af útgefnu hlutafé félagsins verið keypt eða tæplega helmingur þess sem  
 aðalfundur hafði heimilað.                                                     
Þann 24. apríl 2016 ákvað stjórn VÍS að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að   
 70.000.000 kr. Að markaðsvirði. Því var lokið rúmum þremur mánuðum síðar. Þá   
 höfðu 3,05% af útgefnu hlutafé verið keypt til viðbótar.                       
Þann 8. ágúst 2016 ákvað stjórn VÍS að halda endurkaupum áfram en heimildin     
 gildir til 12. september. Samkvæmt þeirri endurkaupaáætlun var áætlað að kaupa 
 að hámarki hluti að nafnverði kr. 12.500.000 eða sem samsvarar 0,55% af útgefnu
 hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna skyldi þó ekki verða hærri en kr.     
 100.000.000. Reglubundnar tilkynningar til markaðarins um kaup VÍS á eigin     
 bréfum hafa upplýst um framgang kaupanna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar þessarar
 er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir 2.939.026 hlutir í félaginu sem        
 samsvarar 0,13 % af útgefnu hlutafé. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 
 kr. 24.660.940.  VÍS á nú samtals 3,18% af heildarhlutafé félagsins sem er     
 2.296.436.567.                                                                 
Endurkaupáætlunin var framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 
 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.                                
Nánari upplýsingar veitir Jakob Sigurðsson forstjóri í síma 560-5000 og gegnum  
 netfangið: fjarfestatengsl@vis.is.