|
|||
![]() |
|||
2016-09-12 08:44:16 CEST 2016-09-12 08:44:16 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirNiðurstaða víxla- og skuldabréfaútboðs ORReykjavík, 2016-09-12 08:43 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Útboð á nýjum skuldabréfum og víxlum Orkuveitu Reykjavíkur fór fram 9. september 2016. Boðnir voru víxlar til tæplega 7 mánaða fyrir allt að 1.360 m.kr. og verðtryggð jafngreiðsluskuldabréf fyrir allt að 4.500 m.kr. í tveimur flokkum til tæplega 8 og 30 ára. Orkuveita Reykjavíkur ákvað að taka tilboðum að nafnverði 2.710 m.kr. samtals og gefa út víxla í flokki OR300317 að nafnverði 1.350 m.kr. á 6,30% ávöxtunarkröfu, skuldabréf í flokki OR090524 að nafnverði 500 m.kr. á 3,37% ávöxtunarkröfu og skuldabréf í flokki OR090546 að nafnverði 860 m.kr. á 3,29% ávöxtunarkröfu. Tilboð bárust í 3.180 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu 5,59-6,75% í víxlaflokkinn OR300317, ávöxtunarkröfu á bilinu 3,30-3,37% í styttri skuldabréfaflokkinn OR090524 og á bilinu 3,13-3,34% í lengri flokkinn OR090546. Útboðið var í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Óskað verður eftir að verðbréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands og verður þá fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara. Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is Brynja Kolbrún Pétursdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og greininga OR, sími 516-6100, brynja.kolbrun.petursdottir@or.is Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka, sími 444-7337, birgir.gudfinnsson@arionbanki.is |
|||
|