|
|||
![]() |
|||
2016-03-18 10:26:08 CET 2016-03-18 10:26:08 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki gefur út skuldabréf í sænskum krónumÍ gær, fimmtudaginn 17. mars, lauk Arion banki skuldabréfaútgáfu í sænskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 275 milljónir sænskra króna, eða sem jafngildir um 4,2 milljörðum króna, til þriggja ára. Bréfin bera breytilega STIBOR vexti að viðbættu 2,65% vaxtaálagi. Skuldabréfin voru seld til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð og á meginlandi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna. Bréfin eru gefin út undir EMTN skuldabréfaútgáfuramma Arion banka og verða þau skráð í Kauphöllinni í Lúxemborg. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|