|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
2022-01-24 10:02:38 CET 2022-01-24 10:02:38 CET REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsSjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunSjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 3 keypti Sjóvá 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 93.750.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2022. Sjóvá átti 42.346.689 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 44.846.689 eigin hluti eða sem nemur 3,54% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 5.025.363 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 189.569.083 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.714.312 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Nánari upplýsingar veitir: Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
|