2016-03-15 09:54:54 CET

2016-03-15 09:54:54 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Hampiðjan hf. – Kaup á 73,381% eignarhlut í Von P/f


Hampiðjan hefur gengið frá kaupum á 73,381% eignarhlut í færeyska fyrirtækinu
P/f Von. Seljandi er félagið Sp/f Kerið í Klaksvík í Færeyjum.  Hampiðjan hefur
að auki gert tilboð í 21% hlut til viðbótar. 

Von er móðurfélag þriggja meginfélaga;  P/f Vónin í Færeyjum, Vonin Refa A/S í
Noregi og UAB Vonin Lithuania. 

Vónin  hefur um árabil stundað framleiðslu og þróun á veiðarfærum og
fiskeldisbúnaði fyrir færeyska markaðinn og starfrækir fjórar starfsstöðvar í
Færeyjum; Þórshöfn, Norðskála, Fuglafirði og Klaksvík.  Þá á Vónin þrjú
dótturfyrirtæki sem starfa við veiðarfæragerð á Grænlandi, Nýfundnalandi og
Danmörku ásamt lítilli söluskrifstofu á Íslandi. Vónin á grænlenska fyrirtækið
Qualut Vónin sem rekur síðan fjögur netaverkstæði á Grænlandi; í Nuuk,
Sisimiut, Aasiaat og Ilulissat. Þá á Vónin Kanadíska fyrirtækið, Vónin Canada,
sem starfrækir netaverkstæði í Port-de-Grave á Nýfundnalandi. Í Danmörku er
Vónin Strandby sem rekur tvö netaverkstæði, annað í Skagen og hitt í Strandby. 

Vonin Refa er norskt félag sem rekur fjórar starfsstöðvar í Tromsö, Finnsnes,
Svolvær og Alta.  Meginframleiðsla Vonin Refa er tengd fiskeldi en
veiðarfæraframleiðsla er einnig töluverður hluti af starfseminni. 

Vonin Lithuania er tiltölulega nýstofnað félag í Litháen, en þar fer fram
framleiðsla á fiskeldiskvíum og trollhlutum fyrir hin fyrirtækin í samstæðunni. 

Starfsstöðvar Von eru því alls 17 við N-Atlantshaf og starfsmenn eru samtals
305. 

Velta Von samstæðunnar á síðasta ári var 59,3 milljónir evra, EBITDA 6,9
milljónir evra. Hagnaður eftir skatta var 3,1 milljónir evra. Í íslenskum
krónum er veltan 8.691 milljónir, EBITDA 1.013 milljónir og hagnaður 454
milljónir. Heildareignir Von samstæðunnar voru 55,7 milljónir evra og voru
skuldir samstæðunnar 30,7 milljónir evra. Í íslenskum krónum eru heildareignir
samstæðunnar 7.898 milljónir og skuldir samstæðunnar 4.374 milljónir. 

Til samanburðar má nefna að velta Hampiðjusamstæðunnar á síðasta ári var einnig
um 59 milljónir evra þannig að félögin eru jafn stór veltulega séð og munu
þessi kaup því væntanlega tvöfalda veltu Hampiðjunnar. 

Eftir kaupin mun Hampiðjan vera með starfsemi í 12 löndum og starfsstöðvarnar
verða alls 35 talsins. Fyrir utan að styrkja þjónustunet Hampiðjunnar
umtalsvert þá bætist við úrval af veiðarfærum og ekki síst mikil þekking og
reynsla í gerð fiskeldiskvía sem henta erfiðum aðstæðum á norðurslóðum. Fram að
þessu hefur Hampiðjan lítið sinnt fiskeldi enda hefur heimamarkaðurinn fyrir
slíkan búnað verið takmarkaður fram að þessu. 

Fyrirsjánleg samlegðaráhrif eru mikil og töluverðir hagræðingarmöguleikar eru
til staðar ásamt stuðningi samstæðufélaganna við starfsemi hvers annars. 

Fyrirvari eru gerður varðandi samþykki samkeppnisyfirvalda vegna kaupanna. Auk
þess mun kaupandi framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu og dótturfélögum
þess. Stefnt er að endanlegum frágangi og uppgjöri í síðasta lagi þann 22.
apríl næstkomandi. Fram að þeim tíma mun félagið leitast við að ná samningum um
kaup á eftirstandandi hlutum. Í kjölfarið verður upplýst um endanlegt kaupverð
hlutanna. 





Nánari upplýsingar veitir:
Hjörtur Erlendsson,
forstjóri Hampiðjunnar,
sími 664 3361