2016-03-15 10:08:39 CET

2016-03-15 10:08:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjaneshafnar


Í tilkynningu Reykjaneshafnar dags. 16. febrúar 2016 kom fram að allir þekktir
kröfuhafar Reykjaneshafnar sem ættu skuldbindingar sem væru fallnar í gjalddaga
hefðu samþykkt að veita greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 15. mars
2016. 

Síðastliðnar vikur hafa átt sér stað viðræður milli Reykjaneshafnar og
kröfuhafaráðs með það að augnamiði að endurskipuleggja fjármál Reykjaneshafnar
og er sú vinna enn yfirstandandi. Útséð er að lausn við greiðsluvanda
Reykjaneshafnar náist ekki innan fyrrnefndra tímarka og samþykkti Stjórn
Reykjaneshafnar á fundi þann 14. mars s.l., að óska eftir framlengdum
greiðslufresti og kyrrstöðutímabili hjá kröfuhöfum sínum til 15. apríl n.k.