2016-03-15 19:05:43 CET

2016-03-15 19:05:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Niðurstöður hluthafafunda

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2016


Þriðjudaginn 15. mars 2016 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á
Hótel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 16.00. 

Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum og þær breytingartillögur sem vísað er til
að neðan má finna á heimasíðu félagsins www.reitir.is/fjarfestar/adalfundir. 

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins
2015. 

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1.036 milljónir kr. vegna
rekstrarársins 2015 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 31. mars 2016,
17. mars 2016 er arðleysisdagur og 18. mars 2016 verður arðsréttindadagur. 

3. Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti þær breytingar á starfskjarastefnu félagsins sem lágu
fyrir fundinum, þó með orðalagsbreytingu sem stjórn lagði til í nýrri grein nr.
5. sem fól þó ekki í sér efnislega breytingu frá fyrirliggjandi tillögum.
Uppfærða starfskjarastefnu verður að finna á heimasíðu félagsins
www.reitir.is/is/um-reiti/stjorn-og-stjornarhaettir. 

4. Heimild til kaupa á eigin hlutum
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum með
þeirri breytingu sem fólst í breytingartillögu frá Gildi lífeyrissjóði. 

5. Breytingar á samþykktum félagsins
a) Tillaga um lækkun hlutafjár úr 754.713.861 kr. í 740.325.774 kr. og
tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt. 
b) Tillaga um breytingu á 17. gr. samþykkta félagsins var samþykkt en
breytingarnar fela það helst í sér að framboðsfresti til stjórnar félagsins var
breytt í 7 sólarhringa fyrir hluthafafund og tímafrestur til að gera kröfu um
hlutfalls- eða margfeldiskosningu verður eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir
hluthafafund. Aðrar breytingar á greininni fela ekki í sér efnislegar
breytingar. 

6. Kjör stjórnarmanna félagsins
Núverandi stjórn var sjálfkjörin til áframhaldandi setu í stjórn félagsins en
þau eru: 
Elín Árnadóttir
Gunnar Þór Gíslason
Martha Eiríksdóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

7. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að KPMG hf. yrði endurkjörið sem endurskoðunarfélag
félagsins. 

8. Ákvörðun um laun stjórnar og undirnefnda stjórnar fyrir komandi starfsár
Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi
starfsár skuli vera 300.000 kr. fyrir almenna stjórnarmenn og 600.000 kr. fyrir
stjórnarformann. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar yrði 100.000 kr. á
mánuði og til annarra nefndarmanna 60.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í
starfskjaranefnd verður 60.000 kr. fyrir hvern setinn fund. Greiðslur til
endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi. 

9. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl.
17.15.