|
|||
![]() |
|||
2016-03-16 15:41:13 CET 2016-03-16 15:41:13 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Samningur íslenskra stjórnvalda við Vodafone um leigu á ljósleiðarastreng í eigu NATO felur ekki í sér ríkisaðstoðMíla ehf. kvartaði í júlí 2010 til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna útboðs Varnamálastofnunar á aðgangi að ljósleiðarastreng í eigu NATO. ESA komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að opna rannsókn á málinu. Þá niðurstöðu fór Míla með fyrir EFTA-dómstólinn sem komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun ESA um að hefja ekki rannsókn væri ekki nægilega vel rökstudd og lagði fyrir stofnunina að rannsaka málið nánar. Í júlí 2014 tók ESA þá ákvörðun að opna formlega rannsókn á útboðinu og hvort í því fælist ríkisaðstoð. Samkvæmt fréttatilkynningu sem ESA birti á vefsíðu sinni í dag hefur stofnunin komist að þeirri niðurstöðu, á grundvelli upplýsinga sem bárust, að umsamið leiguverð fyrir afnot af NATO-strengnum hafi samræmst markaðsvirði. Samningurinn feli því ekki í sér ríkisaðstoð í skilningi 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins. [HUG#1995070] |
|||
|