|
|||
![]() |
|||
2016-03-16 17:30:00 CET 2016-03-16 17:30:00 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)Nýr fjármálastjóri HampiðjunnarHampiðjan hefur ráðið Emil Viðar Eyþórsson sem fjármálastjóra Hampiðjunnar. Emil er 35 ára og menntaður sem viðskiptafræðingur frá HÍ með áherslu á reikningshald og endurskoðun og hefur verið löggiltur endurskoðandi frá 2011. Emil hefur starfað hjá Deloitte í tæp 14 ár, fyrst við endurskoðun og uppgjör en síðar hjá fjármálaráðgjöf Deloitte. Emil varð meðeigandi hjá Deloitte á árinu 2013 og tók við sem yfirmaður fjármálaráðgjafar Deloitte á árinu 2015. Emil er kvæntur Guðlaugu Eddu Steingrímsdóttur og eiga þau þrjú börn. |
|||
|