2015-09-28 17:39:10 CEST

2015-09-28 17:40:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 39. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 237.349 eigin hluti fyrir
17.136.598 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin   Tími       Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                       hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
22.9.2015  11:05       237.349          72,2  17.136.598               4.085.817
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                237.349                17.136.598                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 18. júní 2015. 

Reitir hafa nú keypt samtals 4.085.817 hluti í félaginu sem samsvarar 12,02% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 285.094.820 krónum. Reitir eiga nú samtals
0,54% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og
viðauka við reglugerð nr. 630/2005.