|
|||
![]() |
|||
2016-03-01 16:36:44 CET 2016-03-01 16:36:44 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Nýherji hf. - HluthafafundirNýherji hf. – Framboð til stjórnar og krafa um margfeldiskosningu á aðalfundi félagsins 4. mars 2016Eftirtalin hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Nýherja hf., sem kjörin verður á aðalfundi 4. mars næstkomandi: Ágúst Sindri Karlsson Benedikt Jóhannesson Emilía Þórðardóttir Hildur Dungal Ívar Kristjánsson Katrín A. Friðriksdóttir Loftur Bjarni Gíslason Jafnframt hafa eftirtalin gefið kost á sér til kjörs varamanns í stjórn Nýherja hf.: Guðmundur Jóh. Jóhannsson Katrín A. Friðriksdóttir Það er mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr.hlutafélagalaga og að allir frambjóðendur séu óháðir Nýherja. Frekari upplýsingar um framangreinda aðila munu verða aðgengilegar á upplýsingasíðu aðalfundar 2016 á heimasíðu félagsins http://www.nyherji.is/adalfundur, eigi síðar en 2 dögum fyrir fundinn. Krafa um margfeldiskosningu Stjórn Nýherja hefur borist krafa um að beitt verði margfeldiskosningu til kosningar stjórnar Nýherja sem fram fer á aðalfundi félagsins þann 4. mars næstkomandi. Krafan var send til stjórnar innan tilskilins frests og barst frá hluthafa sem hefur yfir að ráða meira en 10% hlutafjár sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið. Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti: Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu. NÝHERJI HF. Nýherji hf. (NASDAQ OMX: NYHR.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá móðurfélaginu starfa 250 manns en hjá samstæðunni um 500. Dótturfélög Nýherja eru TM Software, TEMPO og Applicon, á Íslandi og í Svíþjóð. Hlutabréf Nýherja eru skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.nyherji.is Til athugunar fyrir fjárfesta: Nýherji vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum. |
|||
|