2016-03-01 19:34:11 CET

2016-03-01 19:34:11 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reginn hf. - Hluthafafundir

Endanleg dagskrá hluthafafundar Regins hf. 22. mars 2016


Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn í
Hörpu tónlistar – og ráðstefnuhúsi, í fundarsalnum Rímu, Austurbakka 2, 101
Reykjavík, þriðjudaginn 22. mars 2016 og hefst stundvíslega kl. 17:00. 

Endanleg dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Tillaga um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um allt að
     126.600.000,- kr. að nafnvirði með breytingu á samþykktum félagsins sem
     felst í eftirfarandi viðbót við 4. gr. samþykkta félagsins:

„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að
126.600.000,- kr. að nafnvirði. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir ekki
um hið nýja hlutafé. Stjórnin skal ráðstafa hlutafjárhækkuninni sem greiðslu
fyrir hlutafé í CFV 1 ehf. og Ósvör ehf. í samræmi við kaupsamning þar að
lútandi á genginu 19,0 kr. á hlut. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í
félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Framangreind heimild
stjórnar Regins hf. rennur út þann 31. desember 2016.” 

  1. Tillaga um eftirfarandi breytingar á 22. gr. samþykkta félagsins:

a)    Eftirfarandi setning í 2. mgr. 22. gr. falli niður:

„Náist ekki viðhlítandi niðurstaða má samþykkja nauðsynlega breytingu með nýrri
ákvörðun hluthafafundar“. 



b)    Ný málsgrein sem verður 3. mgr. 22. gr. bætist við og hljóði svo:

„Ef ljóst er fimm dögum fyrir aðalfund að komandi stjórn mun ekki uppfylla
skilyrði um kynjahlutföll samkvæmt 2. mgr. 22. gr. samþykkta þessara er
sitjandi stjórn heimilt að leita eftir framboðum einstaklinga af því kyni sem
hallar á. Hafi frambjóðendur af því kyni sem hallar á ekki boðið sig fram
tveimur dögum fyrir aðalfund skal stjórn boða til framhaldsaðalfundar 3-4 vikum
eftir aðalfund og auglýsa að nýju eftir framboðum. Skal boða til
framhaldsaðalfundar svo oft sem þörf krefur til þess að ná kynjahlutfalli skv.
2. mgr. 22. gr. og skal stjórn sitja þar til slíku kynjahlutfalli er náð.“ 

c)         Ný málsgrein sem verður 4. mgr. 22. gr. bætist við og hljóði svo:

„Náist kynjahlutföll 2. mgr. 22. gr. ekki við kosningu stjórnar á hluthafafundi
skal sá er fékk flest atkvæði af þeim sem náðu ekki kjöri, og er af því kyni
sem hallar á, taka sæti þess er fæst atkvæði fékk af þeim sem náðu kjöri, og er
af fjölmennara kyninu. Hafi slík kynjahlutföll ekki enn náðst skal sá er fékk
næstflest atkvæði af þeim sem náðu ekki kjöri, og er af því kyni sem hallar á,
taka sæti þess er næstfæst atkvæði fékk af þeim sem náðu kjöri, og er af
fjölmennara kyninu.“ 



3.    Önnur mál.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður
skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð verða
ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að því hefur verið
framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur
sem fyrr er. 

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á
hluthafafundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar með það
löngum fyrirvara, að unnt sé samkvæmt samþykktum þessum að taka málið á dagskrá
fundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á
fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess. 

Hluthafafundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess
hversu margir sækja hann skv. 2. mgr. 16. gr. sbr.  14. gr. samþykkta
félagsins. 

Dagskrá og endanlegar tillögur með greinargerð ásamt öðrum gögnum sem
tillögunni kunna að fylgja munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins
í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, þremur vikum fyrir
hluthafafundinn. Dagskrá og endanlegar tillögur verða auk þess aðgengilegar á
heimasíðu félagsins, www.reginn.is. 



Kópavogur, 1. mars  2016.

Stjórn Regins hf.