2012-12-21 15:19:49 CET

2012-12-21 15:20:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Samþykktir félags

Breytingar á samþykktum – hlutafjáraukning


Hluthafafundur Eyris Invest hf. sem haldinn var í dag, 21. desember 2012,
samþykkti breytingar á samþykktum félagsins. 

Fundurinn samþykkti að auka hlutafé félagsins um allt að 231.000.000 hluta með
útgáfu hluta í nýjum flokki hlutabréfa, B-flokki. B-hlutir eru
forgangshlutabréf sem hafa forgangsrétt að arðgreiðslum og eru ávallt
breytanleg í A-hluti. B-hlutir eru án atkvæðisréttar en njóta atkvæðisréttar í
málefnum er varða breytingar á arðgreiðslustefnu og öllum málefnum er snúa að
réttindum B-hluta. 

Á fundinum var einnig samþykkt að arðgreiðslustefna félagsins verði hluti af
samþykktum. 

Fundurinn samþykkti ennfremur að nema úr gildi heimild stjórnar til útgáfu allt
að 110.000.000 A-hluta. Heildar fjöldi útgefinna A-hluta nemur 1.108.681.220 og
þar af á félagið sjálft 100.000.000 hluti. 

Tilgangur hlutafjáraukningar er að styrkja fjárhag félagsins og auka
sveigjanleika í rekstri. Stjórn félagsins hefur ráðið Arctica Finance sem
ráðgjafa við hlutafjáraukninguna. 

Um Eyri Invest

Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku
í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 33%
hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork
Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið
vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu sem nú verður gert hærra undir höfði
í gegnum félagið Eyrir sprotar slhf. „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris
hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins.