|
|||
2009-05-15 17:28:46 CEST 2009-05-15 17:29:56 CEST REGULATED INFORMATION Nýsir hf. - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning um vinnu á endurskipulagningu Nýsis1) Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurskipulagningu á rekstri Nýsis hf. Eignir félagsins eru að mestu í dótturfélögum sem eiga fasteignir og síðan langtímasamningum um leigu og stoðþjónustu við sveitarfélög. Skuldir félagsins eru verulegar umfram eignir og ljóst að kröfuhafar sem eru með óveðtryggðar kröfur munu fá lítið ef nokkuð fari félagið þrot. Kröfuhafar hafa verið að skoða félagið og hvort þeir geti á einhvern hátt bjargað verðmætum í félaginu sem gæti komið upp í kröfur þeirra. Segja má að vinnuferlinu hafi verið skipt í þrjú þrep. Fyrsta þrepið var að meta hvort kröfuhafar gætu bjargað verðmætum með því að yfirtaka fyrirtækið. Vinnu við þetta fyrsta þrep er lokið. Niðurstaðan er að kröfuhafar telja að þeim sé betur borgið með því að verja þau verðmæti sem í félaginu eru. Um miðjan febrúar s.l. keyptu kröfuhafar allt hlutafé í Nýsi hf. og hafa fyrri eigendur félagsins skilið við það. Undirritaður var þá ráðinn framkvæmdastjóri þess, eða frá 16. febrúar s.l., eins og tilkynnt hefur verið til Kauphallarinnar. Samkvæmt þessu er niðurstaða kröfuhafa að verja beri félagið og þar með þau verðmæti sem í því felast og með því munu þeir fá eitthvað upp í sínar kröfur. Rétt er að fram komi að hér er um að ræða alla stærstu kröfuhafa sem eiga skráð skuldabréf á Nýsi hf. hjá Kauphöll Íslands - NASDAQ OMX. Nú stendur yfir þrep tvö í vinnuferlinu sem er að straumlínulaga reksturinn og eignir félagsins. Þetta getur þýtt að eitthvað af félögum verði sett í þrot og/eða félög leyst upp. Nú þegar hafa Nýsir fasteignir ehf., sem á nokkur dótturfélög sem eiga fasteignir, og Engidalur, sem á húsnæðið að Reykjavíkurvegi 74, verði tekin til gjaldþrotaskipta. Einnig hafa dótturfélög Nýsis fasteigna, Borgarhöllin ehf. og Rekstrarfélag Egilshallarinnar ehf., verið tekin til gjaldþrotaskipta. Að lokinni vinnu við þetta mun taka við framtíðarrekstur félagsins eða nýs félags sem mun taka yfir hluta af eignum þess. Allt er þetta háð samþykki kröfuhafa Nýsis og þeirra aðila sem Nýsir er með samninga við. Við þessa vinnu eru margir óvissuþættir þannig að ekki hefur verið ljóst hvort framangreind áform gangi eftir. Eins og staðan er nú eru taldar meiri líkur en ekki á því að það takist að verja einhver verðmæti upp í þær kröfur sem hvíla á félaginu. Með vísan til framanritaðs og til þess hversu mikið hefur dregið úr starfsemi félagins hafa stjórnendur þess ekki talið fært að ráðast í endurskoðun á reikningum félagsins og dótturfélaga. Þegar fyrir liggur hvort takast muni að bjarga félaginu verður tekin ákvörðun um ársuppgjör vegna ársins 2008. Gert er ráð fyrir að þetta muni liggja fyrir á næstu vikum. 2) Með vísan til framanritaðs hefur beiðni verið lögð fyrir kröfuhafa sem eiga skuldabréf á hendur Nýsi og skráð eru hjá Kauphöll Íslands - NASDAQ OMX um að skuldabréfin verði tekin úr viðskiptum hjá Kauphöll Íslands - NASDAQ OMX. 3) Fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt félaginu að stjórn Fjármálaeftirlitsins hafi tekið ákvörðun um að beita félaginu stjórnavaldssekt, að upphæð kr. 10 millj., þar sem háttsemi Nýsis hafi farið í bága við 1. mgr. 45. gr., 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 122. gr. vvl. á sex mánaða tímabili frá byrjun árs 2008. Rétt er að fram komi að stjórnendur félagsins á framangreindum tíma hafa látið af störfum. Ný stjórn var skipuð hjá félaginu þann 14. apríl s.l. og núverandi framkvæmdastjóri þess tók til starfa 16. febrúar 2009. |
|||
|