|
|||
2010-02-05 17:14:25 CET 2010-02-05 17:15:25 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - HluthafafundirAðalfundur 19. febrúar 2010Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn föstudaginn 19. febrúar 2010 í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37, og hefst fundurinn kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.5 í samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild stjórnar til aukningar hlutafjár sbr. 41. gr. hlutafélagalaga. Aðalfundur Nýherja haldinn 19. febrúar 2010 samþykkir eftirfarandi breytingu á grein 2.1. samþykkta félagins. Í lok greinarinnar komi svohljóðandi bráðabirgðaákvæði: Stjórn félagsins er heimilt sbr. 41. gr. hlutafélagalaga, að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 120 millj. Með sölu nýrra hluta til nýrra hluthafa. Falla núverandi hluthafar frá forkaupsrétti sínum til kaupa á hlutum þessum. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi bréfanna og sölureglur hverju sinni. Skal áskrift fara fram samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og V. kafla hlutafélagalaga. Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Heimild þessa getur stjórn Nýherja nýtt innan þriggja ára frá samþykkt hennar. 3. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55 gr. hlutafélagalaga. Aðalfundur Nýherja haldinn 19. febrúar 2010 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra eða lægra en síðasta skráða gengi á Kauphöll Íslands. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. 4. Tillaga um þóknun til stjórnarmanna: Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2009. 5. Tillaga um þóknun til stjórnarmanna: Fyrir liggur tillaga um að laun stjórnarmanna laun til stjórnarmanna og varamanna þeirra í stjórn Nýherja hf. fyrir árið 2009 verði eftirfarandi: Formaður kr. 2.550.000, Meðstjórnendur kr. 850.000, Varamaður kr. 63.000 fyrir hvern fund eða hin sömu og fyrir árið 2008, en þá lækkuðu stjórnarlaun um 10% frá árinu áður. 6. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða að gera það skriflega. Ársreikningur og tillögur sem lagðar verða fram á fundinum birtast á vef félagsins, www.nyherji.is, þann 5. febrúar nk. Framboð til stjórnar Nýherja hf. á aðalfundi félagsins 19. febrúar 2010. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Nýherja, sem kjörin verður á aðalfundi 19. febrúar næstkomandi, en þeir eiga allir setu í fráfarandi stjórn. STJÓRN Árni Vilhjálmsson, kt: 110532-3509, Hlyngerði 10, 108 Reykjavík. Störf: Núverandi störf eru stjórnarformennska og stjórnarseta í hlutafélögunum HB Grandi hf., Hampiðjan hf., Hvalur hf., Fiskveiðahlutafélagið Venus hf., Nýherji hf. o.fl. Gegndi starfi prófessors við Viðskiptadeild Háskóla Íslands auk ýmissa annarra starfa og verkefna. Menntun: Cand. oecon. frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands og AM í hagfræði frá Harvard háskóla. Eign og tengsl: Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 400.000 Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. Stjórnarformaður í Væntingu hf. sem á 28,5% hlutafjár í Nýherja hf. Benedikt Jóhannesson, kt. 040555-2699, Selvogsgrunni 27, 104 Reykjavík. Störf: Núverandi starf er framkvæmdastjóri Talnakönnunar hf. og Heims hf., auk stjórnarformennsku og stjórnarsetu í hlutafélögum svo sem Nýherja hf., N1 og NBT hf. Fyrri stjórnarstörf í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. o. fl. Menntun: Ph.D í tölfræði og stærðfræði , MS í Tölfræði , BS í stærðfræði og hagfræði. Eign og tengsl: Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 12.384.363 Engin hagsmunatengsl eru við stóra viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. Stjórnarmaður í Áning-fjárfestingar ehf. sem á 10,6% hlutafjár í Nýherja hf. Guðmundur Jóh. Jónsson, kt: 041159 2439, Álfhólsvegi 101, 200 Kópavogur. Störf: Framkvæmdastjóri Varðar tryggingar hf., núverandi stjórnarmaður í Nýherja. Menntun: Viðskiptafræðingur frá Seattle University, MBA frá Edinborgarháskóla. Eign og tengsl: Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 534.218 Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. VARASTJÓRN Jafet S. Ólafsson, kt: 290451-4699, Langagerði 26, 108 Reykjavík. Störf: Framkvæmdastjóri hjá Veigar fjárfestingafélagi. Var framkvæmdastjóri VBS fjárfestingabanka í 10 ár, áður Verbréfastofan. Menntun: Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1973. Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1977. Eign og tengsl: Hlutafjáreign : kr. 5.760.205 Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. |
|||
|