|
|||
2009-02-20 16:01:22 CET 2009-02-20 16:02:23 CET REGULATED INFORMATION MP Fjárfestingarbanki hf. - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Afkoma MP Banka hf. á árinu 2008 Hagnaður 860 milljónir króna eftir skatta. Arðsemi eigin fjár 14,7% MP Banki hf. skilaði 860 milljóna króna hagnaði eftir skatta á árinu 2008, samanborið við 1.780 milljóna króna hagnað á árinu 2007. Skýringin á minni hagnaði bankans eru afskriftir í kjölfar falls stóru íslensku bankanna og gjaldþrots Lehman Brothers. Samtals lagði bankinn til hliðar 2.248 milljónir króna vegna afskrifta og telur sig þar með hafa mætt allri afskriftaþörf sem leiddi af bankahruninu. Hagnaðurinn jafngildir 14,7% ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli. Eigið fé nemur 6.624 milljónum króna og er eiginfjárhlutfall bankans (CAD) 22,3%. Meira en helmingur af eignum bankans var í lausu fé, innstæðum hjá Seðlabanka Íslands og í ríkistryggðum skuldabréfum. MP Banki fékk viðskiptabankaleyfi í lok starfsársins og í árslok námu innlán þriðjungi af fjármögnun bankans en það hlutfall er í dag rúmlega 40%. Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag: • Hagnaður ársins 2008 nam 860 m.kr. sem er 51,7% lækkun samanborið við árið 2007. • Hreinar vaxtatekjur hækka um 51,6% milli ára. Námu 1.181 m.kr. á árinu 2008 samanborið við 779 m.kr. árið 2007. • Þóknunartekjur dragast saman um 32% á milli ára. • Arðsemi eigin fjár (ROE) jafngildir 14,7% ávöxtun á ársgrundvelli árið 2008. • Gengishagnaður af fjármálastarfsemi jókst verulega milli ára og nam 1.825 m.kr. í árslok 2008 samanborið við 159 m.kr. í árslok 2007. • Hreinar rekstartekjur jukust um 61,9% frá sama tíma í fyrra og námu 3.971 m.kr. • Heildareignir bankans haldast stöðugar og í lok desember 2008 eru þær 53.378 m.kr, samanborið við 52.549 m.kr. þann 31. desember 2007. • Afskriftareikningur útlána nemur 2.247 m.kr. • Laust fé bankans nam 15.524 m.kr. þann 31. desember 2008. • Eigið fé var 6.624 m.kr. þann 31. desember 2008 sem er 7,1% hækkun frá 31. desember 2007. • Eiginfjárhlutfall (CAD) samstæðunnar var 22,3% í lok árs 2008. • Fjöldi starfsmanna var 54 þann 31. desember 2008 samanborið við 52 starfsmenn á sama tíma 2007. Um reksturinn á árinu 2008: Rekstur MP Banka gekk vel á árinu, sérstaklega þegar tekið er mið af mjög erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum um allan heim. Vaxtamunur bankans jókst verulega frá fyrra ári sem skýrist að miklu leyti af stöðutöku bankans á skuldabréfamarkaði sem og stór auknum umsvifum í skuldabréfamiðlun. Þóknunartekjur dragast nokkuð saman frá árinu 2007 sem skýrist af minnkandi umsvifum á innlendum og erlendum hlutabréfamarkaði, þó aukningin í þóknunum af skuldabréfamiðlun vegi þar talsvert á móti. Fall íslenska bankakerfisins sem og gjaldþrot Lehman Brothers hafði veruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins og þurfti bankinn að færa í afskriftarreikning verulegar fjárhæðir vegna þessara tveggja atburða. Jafnframt missti bankinn mikið af áhættuvörnum gegn lækkandi eignaverði við fall Lehman Brothers. Eignastýringu bankans vegnaði vel á árinu þar sem góður árangur í stýringu eignasafna viðskiptavina hefur leitt til mikillar aukningar eftirspurnar hjá MP Banka á því sviði. Gildir það jafnt fyrir einstaklinga og stofnanafjárfesta. Gengishagnaður bankans var góður á árinu sem skýrist aðallega af gengishagnaði af stöðutöku í ríkistryggðum skuldabréfum. Í uppgjörinu er veruleg niðurfærsla á fyrirtækjaskuldabréfaeign bankans. CAD eiginfjárhlutfall bankans í árslok 2008 var 22,3%. Í árslok námu innlán þriðjungi af fjármögnun bankans en það hlutfall er í dag rúmlega 40%. Horfur fyrir árið 2009: Ekki sér enn fyrir endann á þeim þrengingum sem eru á fjármálamörkuðum um allan heim. Háir stýrivextir, mikil verðbólga, gjaldeyrishöft og áframhaldandi lækkun á eignaverði gefa heldur ekki tilefni til mikillar bjartsýni. Þá er óvissa um efnahag margra fjármálastofnana hérlendis sem nauðsynlegt er að fá niðurstöðu í sem allra fyrst til að auka traust á innlendum fjármálamarkaði. Hjá MP Banka verður áfram unnið að því að takmarka áhættu í rekstri bankans. Skuldabréfamiðlun verður efld sem og eignastýringarsvið bankans þar sem hlutleysi og fagmennska verða áfram höfð að leiðarljósi. Viðskiptabankaleyfi gefur tækifæri til frekari útvíkkunar á starfseminni en fyrst um sinn verður leyfið nýtt til að breikka þjónustuframboð bankans fyrir viðskiptavini í eignastýringu í formi innlána, séreignarlífeyrissparnaðar og kortaviðskipta. Sterkt eiginfjárhlutfall ásamt meðvitaðri ákvörðun um að minnka áhættu í rekstri bankans á seinni hluta árs 2007 og á árinu 2008 gera bankanum kleift að horfa fram á veginn og byggja bankann upp til að takast á við þau verkefni sem taka við er birtir til í efnahag heimsins. Frekari upplýsingar veitir: Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP Banka hf., í síma 540 3200. |
|||
|