|
|||
![]() |
|||
2015-10-28 17:01:47 CET 2015-10-28 17:02:47 CET REGULATED INFORMATION Hafnarfjarðarkaupstaður - FyrirtækjafréttirFjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir árið 2016 og langtímaáætlun 2017-2019300 milljón króna afgangur af rekstri Hafnarfjarðarkaupstaðar Samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árin 2016 - 2019, sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar í dag, verður 300 milljón króna afgangur á A og B hluta á árinu 2016. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 15% af heildartekjum eða 3,3 milljarðar kr. en það er forsenda þess að árangur náist í að lækka skuldir bæjarins. Umbótum í rekstri og sparnaðaraðgerðum er ætlað að skila því að þjónustustig verði áfram óbreytt og svigrúm verði til niðurgreiðslu skulda. Skuldahlutfall Hafnarfjarðarbæjar verður samkvæmt áætlun 177% í lok árs 2016 en var 202% í árslok 2014 og 216% í árslok 2013. Erlendar skuldir bæjarins verða að stærstum hluta greiddar upp í árslok 2015 þannig að á árinu 2016 verða nær allar skuldir sveitarfélagsins í íslenskum krónum. Áætlaðar eru miklar umbætur í rekstri Hafnarfjarðarbæjar. Sumar hafa þegar átt sér stað og aðrar koma til framkvæmda á næsta ári. Sem dæmi má nefna lækkun rekstrarkostnaðar með því að notast við útboð í ríkari mæli. Áætlunin gerir ráð fyrir hallalausum rekstri A hluta á næsta ári. Annað árið í röð er ekki gert ráð fyrir að vistgjöld á leikskólum hækki. Í áætluninni er gert ráð fyrir að lóðaúthlutanir hefjist í byrjun árs í Skarðshlíð sem er nýtt íbúðahverfi á Völlunum. Einnig verður hafinn undirbúningur framkvæmda við nýjan leik- og grunnskóla og söluandvirði lóða í hverfinu er ætlað að standa undir þeim kostnaði. Jafnframt er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist við byggingu hjúkrunarheimilis á byggingarreit við Sólvang. Gert er ráð fyrir að ljúka byggingu nýs leikskóla við Bjarkarvelli fyrir allt að 100 nemendur og starfsemi hans hefjist haustið 2016. Gert er ráð fyrir að fara í átak við sölu iðnaðarlóða á Völlunum. Söluandvirði þeirra lóða verði nýtt til að greiða niður skuldir."Verði áætlunin samþykkt í þessa veru tel ég að búið sé að ná tökum á undirliggjandi vanda í rekstri bæjarfélagins. Sé rétt haldið á málum eru bjartir tímar framundan í Hafnarfirði. Það sem af er þessu ári hefur farið mikill tími í að endurskipuleggja reksturinn með það að markmiði að ná niður kostnaði, sem virðist ætla takast gangi þessi áætlun eftir. Nú er hægt að fara að snúa sér frekar að ýmsum öðrum málum sem hingað til hafa fengið minni athygli. Gangi áætlunin eftir mun skuldaviðmið Hafnarfjarðar verða komið niður fyrir þau 150% sem sveitarstjórnarlög kveða á árinu 2017" segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Bæjarstjóri mun halda fund í Bæjarbíói kl. 20 þann 10. nóvember þar sem hann kynnir tillögu að fjárhagsáætlun. [HUG#1962091] |
|||
|