2013-12-23 10:29:28 CET

2013-12-23 10:30:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Veðréttindi skuldabréfaflokks Skipta hf., SKIPTI 13 01


Í verðbréfalýsingu Skipta dagsettri 10. desember 2013 kemur fram í kafla 2.7
Samkomulag um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku að samkomulag um
sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku liggi að baki skuldabréfinu.
Samkomulagið er á milli Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila,
eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 og Skipta hf. sem
lántaka og útgefanda. Lán Skipta hjá Arion banka hf. og skuldabréfaflokkurinn
SKIPTI 13 01 eru tryggð með 1. veðrétti í helstu eignum félagsins og
dótturfélaga þess eins og kveðið er á um í Veðskjölunum. Heildarvirði veðsettra
eigna nam um 90 milljörðum króna miðað við bókfært virði þann 30. júní 2013 í
árshlutareikningi móðurfélagsins.. Veðskjölin eru m.a. með veði í fasteignum,
bifreiðum, tilteknu lausafé, hugverkaréttindum, vörubirgðum, hlutabréfum í
félögum innan samstæðu Skipta, kröfum samkvæmt lánasamningum innan samstæðu
Skipta, innstæðum og bankareikningi, samningsbundnum réttindum í
staðsetningarsamningum, þjónustusamningum og vátryggingasamningum.