2013-10-07 11:51:49 CEST

2013-10-07 11:52:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - RVK 19 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2013 að efna til
útboðs miðvikudaginn 9. október. Eingöngu verður efnt til útboðs í flokki RVK
19 1 að þessu sinni. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð
500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að
hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna
þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð RVK 19 1 fyrir þetta útboð nemur alls 2.415 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2013 er 3.299 m.kr. að markaðsvirði.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 14. október 2013.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Arion banka, Íslandsbanka,
Landsbanka, MP Banka og Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt
á tilboðsgerð. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðslýsingu í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321