|
|||
![]() |
|||
2017-09-14 12:40:20 CEST 2017-09-14 12:40:20 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta árs 2017Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2017 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 3.012 mkr. vegna framkvæmda. Nú þegar hefur Reykjavíkurborg aflað 1.484 mkr. til framkvæmda í útboðum í febrúar, apríl og maí. Stefnt er að því að afla 1.528 mkr. á síðari hluta ársins í útboðum. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 14. september 2017 eftirfarandi útboðsdagsetningar fyrir seinni hluta árs 2017. Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 20. september, 18. október og 22. nóvember. Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokki RVK 53 1 og óverðtryggðum skuldabréfaflokki RVKN 35 1. Heildarstærð RVK 53 1 er ISK 22.190.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð RVKN 35 1 er ISK 5.690.000.000 að nafnvirði. Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi.
Nánari upplýsingar gefur: |
|||
|