2014-02-20 09:23:04 CET

2014-02-20 09:23:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Ársreikningur

Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2013


Í viðhengi má finna ársreikning bankans, afkomutilkynninguna í heild sinni og
fjárfestakynningu.

HELSTU NIÐURSTÖÐUR:

  * Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 23,1 ma. kr. árið 2013 (4F13: 7,7
    ma. kr.) samanborið við 23,4 ma. kr. árið 2012 (4F12: 7,2 ma. kr.).
  * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 14,7% á árinu (4F13: 19,5%) samanborið
    við 17,2% árið 2012 (4F12: 19,7%). Lækkun arðsemi milli ára skýrist fyrst og
    fremst af hækkun eigin fjár sem nemur 14,4% milli ára.
  * Eiginfjárhlutfall var áfram sterkt eða 28,4% (2012: 25,5%) og
    eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 25,1% (2012: 22,0%).
  * Hreinar vaxtatekjur námu 28,4 ma. kr. (2012: 32,9 ma. kr.) sem er lækkun um
    13,7% milli ára. Vaxtamunur var 3,4% (4F13: 3,1%) og fer lækkandi samhliða
    því að afföll á lánasafni sem keypt var frá Glitni fara úr bókum bankans.
  * Hreinar þóknanatekjur námu í 10,4 ma. kr. á árinu (4F13: 2,8 ma. kr.)
    samanborið við 9,5 ma. kr. árið 2012 (4F12: 2,8 ma. kr.). Hækkunin er um
    10% á milli ára og má að mestu rekja til viðskiptabanka, eignastýringar og
    dótturfélaga bankans.
  * Kostnaðarhlutfall var 58,5% (2012: 53,8%).
  * Skattar og gjöld greidd til ríkis og stofnana námu samtals  12,4 ma. kr. á
    árinu, samanborið við 9,2 ma. kr. 2012, sem er hækkun um 34% á milli ára.
  * Virðisbreyting útlána og krafna var jákvæð um 16,3 ma. kr. á árinu (2012:
    5,7 ma. kr.), en tekjufærsla vegna endurmats eigna var mun hærri en sértæk
    virðisrýrnun á árinu.
  * Frá stofnun bankans hafa um 35.500 einstaklingar og um 4.100 fyrirtæki
    fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema um 548
    ma. kr.
  * Endurskipulagning gengur vel, hlutfall lána í endurskipulagningu var 8%
    (des. 2012: 14%), meira en 90 daga vanskil voru 4% (des. 2012: 8%).
  * Heildareignir voru 866 ma. kr. við lok árs 2013 (2012: 823 ma. kr.) en útlán
    til viðskiptavina hækkuðu um 3% á seinni árshelmingi.
  * Heildarinnlán voru 519 ma. kr. (2012: 509 ma. kr.).



Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Árið 2013 var gott ár hjá Íslandsbanka og má segja að við höfum uppskorið
árangur þeirra miklu og góðu vinnu sem starfsmenn á öllum sviðum bankans hafa
lagt af mörkum á undanförnum árum.

Auknar álögur á bankann draga úr hagnaði og var greiddur bankaskattur 2,3
milljarðar á árinu. Samtals greiddi Íslandsbanki 12,4 milljarða í skatta og
gjöld til hins opinbera ásamt eftirlitsgjöldum.

Við sjáum aukin umsvif í atvinnulífinu en ný útlán á árinu 2013 námu um
eitthundrað milljörðum króna og allt bendir til að fyrirtæki og einstaklingar
hafi meira svigrúm til fjárfestinga en áður. Við höfum lagt áherslu á aukningu
þóknanatekna sem skilaði sér í 10% aukningu þóknanatekna á milli ára  en þær
námu 10,4 milljörðum samanborið við 9,5 milljarða árið 2012.  Íslandsbanki var
fremstur í miðlun hlutabréfa á árinu og er leiðandi í skráningu hlutafélaga á
markað.

Góð framvinda hefur verið í hagræðingarverkefnum innan bankans en hins vegar
litast uppgjörið af einskiptisliðum, bæði í tekjum og kostnaði.

Við höfum lagt mikla áherslu á að fjölga stoðum í fjármögnun bankans með góðum
árangri. Aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum gerir okkur betur í stakk búin
til að styðja við viðskiptavini okkar sem stunda alþjóðleg viðskipti og þarfnast
fjármögnunar í erlendri mynt.Kannanir sýna ítrekað að bæði einstaklingar og fyrirtæki, telja bankann vera í
fararbroddi og vera leiðandi í þjónustu í dag. Þessar niðurstöður gleðja okkur
mikið og hvetja okkur til að gera sífellt betur."



FJÁRFESTAKYNNING Í REYKJAVÍK

Síðar í dag kl. 16.00 munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón
Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og
svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum
bankans að Kirkjusandi. Skrá mig.



SÍMAFUNDUR Á ENSKU

Boðið verður upp á símafund fyrir markaðsaðila síðar í dag kl. 13. Fundurinn fer
fram á ensku og farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og
afkomu bankans. Nauðsynlegt að gestir skrái sig ir@islandsbanki.is. Fundargögn
og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila stuttu fyrir
fundinn.



Allar kynningar og gögn er tengjast afkomu bankans má finna á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1763402]