2009-02-23 16:29:33 CET

2009-02-23 16:30:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sorpa - Ársreikningur

- Ársreikningur 2008


Fréttatilkynning vegna ársreiknings Sorpu b.s. fyrir árið 2008, sem samþykkt
var af stjórn samlagsins þann 23. febrúar 2009. 

Sorpa b.s er byggðasamlag, sem stofnað er í samræmi við ákvæði VII kafla
sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 (áður IX kafla laga nr 8/1986) um samvinnu
sveitarfélaga við framkvæmd einstakra verkefna.  Tilgangur byggðasamlagsins er
að annast sorpeyðingu fyrir sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem öll eru
stofnaðilar að því.  Sveitarfélögin, sem aðild eiga að byggðasamlaginu, bera"in solidum" einfalda ábyrgð á fjárhagsskuldbindingum þess gagnvart kröfuhöfum. 

Niðurstöður:

Hagnaður Sorpu b.s. á árinu 2008 nam 4,2 millj.kr. en var 161,2 millj.kr. árið
2007  Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 250,5 millj.kr. á árinu
2008 en var 307,2 millj.kr. á árinu 2007. Rekstrartekjur samlagsins námu
2.048,6 millj.kr. árið 2008 samanborið við 2.006,2 millj.kr. árið 2007 sem er
2,1% hækkun.  Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða voru 1.798,2
millj.kr. samanborið við 1.699,1 millj.kr. 2007 og er hækkunin tæp 6%. 

Heildareignir samlagsins 31. desember 2008 námu 1.885,9 millj.kr. og 
heildarskuldir 778,8 millj.kr.  Eigið fé 31. desember 2008 var 1.107 millj.kr.
og hafði aukist um 8,4 millj.kr. frá því í upphafi árs.  Eiginfjárhlutfall var
tæp 59% en var í lok síðasta árs rúmlega 60%. 

Handbært fé frá rekstri á árinu 2008 var 383,9  millj.kr. en var árið 2007
262,8 millj.kr.  Veltufjárhlutfall í árslok 2008 var 1,2 og handbært fé nam
290,5 millj.kr.  Fjárfestingarhreyfingar ársins 2008  námu 216,9 millj.kr. og
fjármögnunarhreyfingar tæpar 137,4 millj.kr. 

Reikningsskilaaðferðir:

Ársreikningur Sorpu b.s. er gerður í meginatriðum eftir sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður.