2013-11-08 10:00:00 CET

2013-11-08 10:00:28 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
FAST-1 slhf. - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning til Kauphallar Íslands frá FAST-1 slhf.


FAST-1 slhf.  tilkynnir að  uppgötvast hafi  þann 6. nóvember  2013 að ekki hafi
verið  staðið  með  fullnægjandi  hætti  að  veðsetningu  til  tryggingar á þeim
fasteignum  sem  getið  er  til  um  í  skilmálum  Útboðslýsingar  vegna  útgáfu
skuldabréfaflokks  með auðkenni  FAST-1 12 1. Nánar tiltekið  hafði annars vegar
orðið dráttur á þinglýsingu tryggingabréfa og hins vegar hafði láðst að þinglýsa
aðilaskiptum að áhvílandi tryggingarbréfum.

Útgefandi  hefur nú þegar brugðist við  og gefið út fullnægjandi tryggingarskjöl
sem  móttekin  hafa  verið  af  sýslumannsembættinu  til  að  fullnægja umræddum
skilyrðum  um  sérstaka  skuldbindingu  samkvæmt  skilmálum  í  Útboðslýsingu en
sýslumannsembættið tekur sér nokkra daga til að skrá inn umrædd veðréttindi.

Þá mun útgefandi tilkynna opinberlega þegar þinglýsingu framangreindra trygginga
er lokið og skilmálum Útboðslýsingar hefur verið fullnægt.


[HUG#1741728]