|
||||||||||||||||||||||||
2018-09-21 18:42:29 CEST 2018-09-21 18:42:29 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsVÍS: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunVátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) keypti í liðinni viku 849.698 eigin hluti fyrir kr. 9.402.776 eins og hér segir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 30. ágúst 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 23. ágúst 2018. VÍS hefur nú keypt samtals 5.191.497 hluti í félaginu sem samsvarar 19,59% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 57.300.938. VÍS á nú samtals 0,23% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.952.642.307. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 26.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
||||||||||||||||||||||||
|