2018-09-21 19:13:09 CEST

2018-09-21 19:13:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 hf. - Boðun hluthafafundar

N1 hf: Breytt tillaga stjórnar til hluthafafundar starfskjarastefnu


Ágæti hluthafi



Á  síðustu dögum hef ég  átt samtöl við stærstu  hluthafa félagsins um framlagða
tillögu að starfskjarastefnu fyrir félagið sem verður tekin fyrir hluthafafund í
N1 þann 25. september 2018. Þessi samtöl hafa verið mjög gagnleg og hefur stjórn
N1   nú   ákveðið  að  leggja  fram  nýja  tillögu  að  starfskjarastefnu  fyrir
hluthafafundinn.

Markmið starfskjarastefnunnar er að tryggja að hagsmunir starfsmanna, stjórnenda
og stjórnar fari saman við langtímaárangur félagsins og langtímahagsmuni eigenda
þess, sem eru að stærstum hluta lífeyrissjóðir.

Breytingarnar  fela í sér að kaupauki forstjóra getur orðið að hámarki 3 mánuðir
frá og með 1. janúar 2019 í stað 6 mánaða áður. Einnig er fallið frá heimild til
að   greiða   forstjóra   umfram   ráðningarsamning   komi   til   uppsagnar   á
ráðningarsamningi  og heimild  til upphafsgreiðslu  til forstjóra  við ráðningu.
 Slíkar  greiðslur hafa aldrei verið inntar af hendi og því er hér ekki um stóra
breytingu að ræða.

Stjórn  félagins  telur  jafnframt  mikilvægt  að kaupaukagreiðslur séu hluti af
ráðningarkjörum forstjóra til að samtvinna betur hagsmuni hluthafa og stjórnenda
en mikilvægt sé að víðtæk sátt sé um slíkt fyrirkomulag og er það trú mín að með
þessum breytingum náist það.

Með  þessu vill stjórn N1  skapa fordæmi í íslensku  atvinnulífi með því að sýna
hógværð  í breytilegum  launagreiðslum til  æðstu stjórnenda  en telur jafnframt
mikilvægt   að allir sýni í verki vilja til að ná sátt um launaþróun í landinu.
Með  þessum breytingum telur stjórnin að komið  sé til móts þá gagnrýni sem fram
hefur  komið og  er rétt  að undirstrika  að um  er að ræða heimild til greiðslu
kaupauka,   en   ekki  skyldu.  Meðfylgjandi  er  breytt  tillaga  stjórnar  til
hluthafafundar um starfskjarastefnu N1.



                               F.h stjórnar N1 hf



                    Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður


[]